Í júní mánuði munum við bjóða upp á skemmtilegt og skapandi kvikmyndanámskeið fyrir 10–12 ára krakka.
Þar fá ungir þátttakend að kynnast heimi kvikmyndagerðar á lifandi og skemmtilegan hátt.
Krakkarnir fá að vinna með alvöru kvikmyndabúnað og fá tækifæri til að skapa sína eigin mínútumynd eða auglýsingu.
Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa einhverja reynslu af upptökum og áhersla er lögð á sköpun, samvinnu ásamt því að efla sjálfstraust í gegnum skapandi verkefni.

Á námskeiðinu læra krakkarnir að:
- Taka upp atriði með alvöru kvikmyndabúnaði
- Segja sögur með myndmáli og skapa skemmtilegar senur
- Búa til sína eigin mínútumytnd eða auglýsingu
- Nota professional tækjabuúnað
- Vinna með lýsingu og hljóð
- Nota atvinnu klippiforrit
- Vinna saman sem alvöru upptöku teymi
Markmiðið er að efla:
- Sköpunargáfu
- Sjálfstraust
- Tæknilega þekkingu
- Ákvörðunartöku
- Samvinnu


KENNARI
Námskeiðið er kennt af Viktor A. Bogdanski sem rekur framleiðslufyrirtækið Blindspot og hefur yfir 15 ára reynslu við gerð auglýsinga, þátta og aðra efnissköpun.
Undanfarin ár hefur hann framleitt og komið að útgáfu á vinsælu barnaefni sem hefur verið sýnt á öllum helstu sjónvarpsstöðvum landsins með frábærum viðtökum. Viktor hefur ótrúlega gaman af því að gefa af sér, með góða orku og gleði að leiðarljósi.
Upplýsingar um námskeiðið
Fyrir hverja: 10–12 ára
Tímabil: 15. Júní – 19. Júní / 22. Júní – 26. Júní
Tími dags: Fyrir hádegi (kl. 09-12) eða eftir hádegi (kl. 13-16)
Verð: 49.000 kr. (Forskráningagjald er 39.000 kr. ef bókað ef fyrir 1. Júní)
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið (nánari upplýsingar væntanlegar)

Hér fyrir neðan er skráningarform til að skrá börn á námskeiðin.

